Svona gerir maður fimm stjörnu sósu á fimm mínútum

Er hægt að gera soðið tært...að nýju?

Já, ef þú bætir eggjaskurn út í soðið festast óhreinindin innan á skurnina og þá er hægt að fjarlægja þau með henni. Mundu að ná upp suðunni aftur til að forðast salmonellu. Frystu afgangssoð í klakaboxum eða klakapokum. Þannig hefur þú alltaf soð – og sósu – við höndina.

Svona gerir maður

Margir eru hræddir við að búa til sósur og eru sannfærðir um að eina leiðin til að fá virkilega ljúffenga sósu sé að panta borð á næsta Michelin-veitingastað. En þú getur andað rólega. Allt er létt þegar maður kann það og við erum hér til að kenna þér.
Legðu þessa formúlu á minnið:

  1. Sjóddu ½ flösku af víni (Hvíta fyrir kjúkling, kálfakjöt og fisk. Rautt fyrir nautakjöt, lambakjöt og kalkún) ásamt lauk sem er skorinn í bita þar til sósan er þykk og sýran hefur gufað upp.
  2. Bættu einum pela af rjóma út í.
  3. Bættu kjötsoðinu út í (eða súputeningi).
  4. Valfrjálst: Bættu út í sveppum eða kryddjurtum eins og fáfnisgrasi (estragoni), dilli eða steinselju.