Hvaða hníf á að nota í hvað?

Þessa sex hnífa ættir þú að eiga Til þess að.
Úrbeiningarhnífur Hann er gott að eiga ef þú skerð eigið kjöt í bita. Einnig getur verið gott að nota hann við að úrbeina stóra alifugla eða villibráð eða til að skera nautalundir í sneiðar.
Brauðhnífur Fyrir brauð, að sjálfsögðu, en einnig fyrir stærri hluti eins og kálhöfuð, grasker og vatnsmelónur.
Kjöthnífur Yfirleitt notaður þegar skera á steik eða alifuglakjöt. Lögun hnífsins og bit gerir hann að besta hnífnum til að skera þunnar sneiðar eins og til dæmis við gerð sashimis.
Kokkahnífur Þetta er líklega gagnlegasti og dýrmætasti hnífurinn í eldhúsinu. Þú getur notað hann í næstum því allt sem þarf að skera, sneiða eða saxa.
Kryddhnífur Tekur við þar sem kokkahnífurinn strandar, það er að segja þegar unnið er með smá hluti. Til dæmis þegar skræla þarf grænmeti eða skera og skræla ávexti.
Fjölnota hnífur Góður hnífur til almennra nota. Gott er að skera með honum pylsur og osta í smáa og fínlega bita. Góður í hádegisverðinn og lautarferðina.
Aðrir hnífar sem gott er að eiga Til þess að.
Kjötvinnsluhnífur 18 sm Sérlega góður til að búta niður kjöt og sneiða kjötálegg.
Kjöthnífur 22-23 sm Til að skera kjöt sem verið er að framreiða. Til að sneiða svínakjöt og önnur stór kjötstykki.
Chartreuse-hnífur Fyrir skapandi kokka. Hentar vel til að skera skrautmunstur í grænmeti (til dæmis gulrætur, gúrkur og kartöflur). Sérstakt hnífsblað með sagtenntri brún.
Söxunarhnífur 21 sm Auðveld leið til að saxa grænmeti. Einnig hægt að nota í pítsur og grænmeti sem á að nota í salöt eða snöggsteikja. Einnig má nota hann í kjöt og fisk.
Flökunarhnífur 18-24 sm Til þess að flaka fisk og skera niður kjöt.
Spekkhnífur Gott að nota til að skera skinku í næfurþunnar sneiðar eða skera og aðskilja deiglög. Hægt er að nota hann á svipaðan hátt og flökunarhníf.
Japanskur santuko-hnífur 17 sm Sitt lítið af hverju. Til dæmis góður til að skera eða höggva kjöt í bita.
Japanskur grænmetishnífur 14-18 sm Til að skera og sneiða kál og grænmeti.
Kjötöxi 16 sm Góð til að skera heila stóra skurði í kjöt og svínaskammrif.
Skrælihnífur 5 sm Hentar vel til að gera súkkulaðispæni eða skera Parma-ost. Einnig er gott að fjarlægja með honum skemmdir eða skræla kartöflur, ávexti eða grænmeti.
Laxahnífur 32-33 sm Sker lax og annan fisk í næfurþunnar sneiðar. Einnig er gott að skera með honum grænmeti í örþunnar sneiðar og kjöt í carpaccio. Suma grænmetishnífa má nota sem alhliða eldhúshnífa.
Steikarhnífur 12-22 sm Góður til að skera steikur og kótilettur.