Svona heldur þú öllum hnífunum beittum í skúffunni

Líttu á dagatalið. Þú ættir að brýna hnífana á um það bil tveggja mánaða fresti. Notaðu stálbrýni ef þú ræður við það með góðu móti. Annars skaltu nota brýnistein. Svona ferðu að:

1 Taktu þér tíma. Það getur verið mjög róandi að brýna hnífa.
2 Leggðu steininn í bleyti þar til loftbólur hætta að koma úr honum. Leggðu steininn á góða undirstöðu (oftast fylgja undirstöður með brýnisteinum þegar maður kaupir þá) og bleyttu hann með vatni.
3 Taktu þér hnífinn í hægri hönd og leggðu hnífseggina skáhallt yfir steininn. Hallaðu hnífsblaðinu svo það myndi 10-15 gráðu horn við steininn. Haltu þessum halla allan tímann.
4 Láttu hægri höndina stjórna hallanum en leggðu þrjá miðjufingur vinstri handar á hnífsblaðið.
5 Athugaðu að á meðan á brýningunni stendur mun þykkni myndast úr ryki og vatni. Leyfðu þykkninu að vera; það virkar sem brýniefni.
6 Dragðu hnífinn í áttina til þín með stórri hreyfingu, og færðu hann léttilega fram og aftur á steininum. Byrjaðu við hnífsoddinn og færðu þig síðan nær handfanginu. Tíminn sem fer í að brýna hnífinn fer eftir ástandi hans. Þegar togað er og ýtt á þennan hátt myndast örsmá nöf hinu megin á hnífsblaðinu.
7 Snúðu hnífsblaðinu við og sverfðu nöfina af með sömu hreyfingu og áður. Nú þarf ekki að brýna eins lengi.
8 Þegar litla nöfin er horfin er hnífurinn tilbúinn til notkunar. Þú getur rennt nöglinni eftir egginni báðu megin á hnífsblaðinu til að finna hvort nöfin er farin.