|
|
Slappar kryddjurtir? Útbúðu þeim loftbelg
Ef þú kaupir kryddjurt í potti en notar aðeins nokkur blöð af henni, er leiðinlegt að sjá hana verða slappa eftir fáeina daga. Góð leið til að geyma viðkvæmar kryddjurtir er að binda plastpoka yfir þær og búa til einskonar loftblöðru um þær. Þá verja loftþéttar umbúðirnar kryddjurtina.
|
Beittu þessu bragði
Kannski hljómar þetta kunnuglega. Þú varst að kaupa ferska basiliku-jurt í potti og sérð fram á margar vikur með kryddjurtum og ferskum ilmi í eldhúsinu. En áður en þú nærð að kaupa inn í fyrsta mozzarellasalatið er jurtin strax búin á því, alveg eins og þú. Næst skaltu gera svona: Klipptu efstu spírurnar af plöntunni, rétt ofan við liðamót, áður en hún blómstrar. Stingdu niður græðlingunum, litlu grænu spírunum. Nú getur þú hlakkað til þess að basilikan þín spretti úr öllum áttum – aftur og aftur.
|