Svona verður græna salatið ekki brúnt á hlaðborðinu

Fleiri liti takk

Einu sinni prýddi aðallega grænt salat salatskálar okkar en í dag er fjölbreytnin mikil og hægt að velja um ólíkar tegundir, liti og bragð, eins og til dæmis bindisalat (rómverskt salat), iceberg, jólasalat, escaloresalat, kaffifífil, vætukarsa og klettasalat. Njóttu þess því endilega að bragða á hinum ólíku tegundum næst þegar þú útbýrð salat.

Rífðu, ekki skera

Litir hafa árif á matarlystina. Matargestir borða með augunum. Hvernig getur þú komið í veg fyrir að grænu salatblöðin breytist í klístrað brúnt ógeð í miðri veislu? Áður en þú útbýrð salatið skaltu teipa hnífana þína fasta í hnífastandinn. Ef þú skerð salatið með hníf skemmirðu náttúruleg rotvarnarefni þess. Rífðu það frekar niður í höndunum. Jú, það tekur aðeins lengri tíma en salatið helst lengur grænt svo þú getur alltaf átt afgang til næsta dags handa þeim sem gista.