Svona forðar þú Hasselbach-kartöflum frá því að verða að kartöfluflögum

Bach! Ekki bakað!!!

Það er ekkert til sem heitir „hasselbakaðar kartöflur“. Hasselbach-kartöflur eru sneiddar að ofan og bakaðar. Nafnið er dregið af kokkinum sem fann upp á því að sneiða og baka. Þá veistu það.

Notaðu skeið eða tein

Ofninn er heitur og þú átt aðeins eftir að sneiða meðalstóru bökunarkartöflurnar, skella þeim í ofninn, bíða í klukkustund og bera síðan fram ljúffengar Hasselbachkartöflur. Þú tekur þér hníf í hönd og hefst handa, en: Skera, skera, skera, úbbs. Skera, skera, oooohhh. Það er erfitt að komast hjá því að skera alveg í gegnum kartöflurnar án þess að nota „hnífastoppara“, eins og til dæmis skeið sem þú getur sett kartöfluna í. Þú getur einnig stungið prjóni neðarlega í gegnum kartöfluna svo þú skerir ekki alla leið í gegnum hana. Gerðu þetta næst þegar þú vilt bera fram Hasselbach-kartöflur – en ekki kartöfluflögur.