|
|
Sígildur ferskleiki
Iceberg-salatið er sígilt í heimi grænmetisins. Það er oftast borðað hrátt en þar sem það er stökkt má einnig snöggsteikja það á pönnu. Það helst lengur ferskt ef það er geymt í ísskáp, og enn lengur ef það er geymt í O-svæðis hillunni frá Gorenje.
|
Dúndraðu því
Rót kálhöfuðs er til ama af mörgum ástæðum. 1 Hún er ekki góð á bragðið. 2 Það verður að skera í kringum hana þegar salatið er útbúið. 3 Það tekur langan tíma. 4 Þá fer yfirleitt alltaf gott salat til spillis. Sem betur fer eru til góð ráð sem þú getur fylgt það sem eftir er matreiðslulífs þíns. Taktu salathöfuðið, náðu góðu taki um það og dúndraðu því í borðið. Rótin losnar þá frá kálinu og þá þarf bara að fleygja henni í ruslið. Við ráðleggjum fólki að reyna þetta ekki með hvítkálshöfuð!
|