|
|
Tómatar þola ekki tóbak!
Tómatar og tóbak fara illa saman. Ef þú ræktar eigin tómata skaltu varast að snerta þá ef þú ert nýbúinn að reykja. Tóbak inniheldur svo til alltaf tíglasýkiveirur sem berast í tómata við snertingu. Nýjar gerðir tómata eru langflestar ónæmar fyrir tíglasýkiveirunni.
|
Klíptu þá í botninn
Kirsuberjatómatar eru kringlóttir og kringlóttir hlutir hafa tilhneigingu til að rúlla. Sérstaklega þegar þú reynir að skera þá. Og hvað gerir kokkurinn þá? Gott ráð er að skera botninn af við stilkinn. Sá hluti er hvort sem er ekki nýttur. Þá getur þú lagt tómatinn flatan á hvolf og skorið þunnar, jafnar sneiðar án þess að hann rúlli burt.
|