|
|
Smáræði um sítrónur
Sítrónur má nota með svo gott sem öllu. Þeyttur rjómi stífnar betur ef settir eru í hann fáeinir dropar af sítrónusafa (sérlega gagnlegt ef þú ert ekki með rafknúinn þeytara við höndina). Tannín úr tei blettar ekki tennur eða bolla ef í teinu er sítrónusneið. Í endurreisninni notuðu hefðarkonur meira að segja sítrónusafa til að fá rauðari varir.
|
Ekki standa á gati – gataðu
Óðagot. Þú átt von á gestum á hverri stundu og hin dæmigerða, taugaveiklaða yfirhalning „frá heimili til sýningarsalar“ er í fullum gangi. Kertastjakanum er haganlega komið fyrir á rauðrófublettinum á damask-dúknum. Sokkarnir af krökkunum eru í óhreinatauskörfunni. Í útskorinni skál standa sítrónur til skrauts. Og nú vantar þig auðvitað sítrónur til að bragðbæta vatnið í karöflunum – og nei, þú getur ekki notað skreytinguna! Teldu upp að tíu og finndu nál. Stingdu gat á sítrónuna með grófri nál og kreistu úr henni eins mikinn safa og þú þarft. Gatið lokast síðan aftur og þú átt enn heila sítrónu og getur skreytt eins mikið og þú vilt.
|