Svona veist þú hvort steikingarolían er nógu heit

Eru þær tilbúnar? Þreifaðu þig áfram Eru þær tilbúnar? Þreifaðu þig áfram

Frosnar franskar eru yfirleitt gerðar úr kartöflumjöli. Best er að elda þær með því að hella lítra af olíu í tveggja lítra pott og hita hana í 200 gráður. Ef franskarnar eru gerðar úr alvöru kartöflum er best að baka þær í ofni við 250 gráðu hita í 10-12 mínútur. Hvort sem þú bakar eða steikir kartöflurnar eru þær tilbúnar þegar þær eru nógu mjúkar. Þreifaðu því á þeim, þær ættu að vera harðar og stökkar að utan og mjúkar að innan.

Framkvæmdu kraumtilraunina

Jæja, allt er til reiðu fyrir steikinguna. Kartöflurnar eru skornar í þunnar sneiðar, krakkarnir eru búnir að sækja tómatsósuna, en samt er eitthvert hik á þér. Er olían nægilega heit? Steikingahitamælirinn er hvergi sjáanlegur og ekki svo skynsamlegt að athuga hitann með fingrinum. Hvað gerir þú þá? Hér getur brauðbiti hjálpað. Stingdu gaffli í brauðbitann og dýfðu honum í olíuna. Ef olían kraumar kringum brauð-bitann er olían tilbúin. Þú getur líka gert þetta með eldspítu (ekki hafa kveikt á henni). Stingdu viðarendanum ofan í olíuna. Ef hún kraumar er olían nógu heit.