Það er ekkert að því að nota kjöthitamæli sem segir til um það hvenær maturinn er tilbúinn. En hvers vegna að reiða sig á verkfæri þegar hægt er að læra einfaldar aðferðir? Og hvernig stingur maður hitamæli í egg?
Það er synd að bera fram mat sem ekki er tilbúinn (eins og að byrja brandara á niðurlaginu) og hér á gamla máltækið „allt hefur sinn tíma“ vel við. En máltækið vekur upp fjölda spurninga. Hvenær er tíminn réttur? Hvernig vitum við að kjúklingurinn er tilbúinn svo við komumst hjá því að bjóða gestum upp á framandi salmonellu sem aukarétt? Hvenær er steikin meðalsteikt og hvenær vel steikt? Lestu áfram því í næsta kafla munum við svara þessum spurningum, auk annarra.
|