|
|
Forðastu upplitun
Ætiþistlar, eins og einnig epli, geta upplitast. Það er synd þegar svo fallega lagað grænmeti á í hlut. Leggðu því ætiþistilinn í vatn með smá ediki út í til að koma í veg fyrir að það upplitist, eða snöggsjóddu hann í vatni með sítrónusafa.
|
Rykktu og togaðu
Suðutími ætiþistla er 25-45 mínútur, allt eftir stærðinni. Því stærri sem ætiþistillinn er því lengri suðu þarf hann. Ef þú vilt ekki bera á borð hörð og illa soðin lauf (sem jafngildir því að framreiða vín með korktappann í flöskunni) skaltu gera eftirfarandi: Togaðu í eitt af neðstu laufunum. Ef auðvelt er að losa það er ætiþistillinn mjúkur og tilbúinn að koma upp úr pottinum og fara á borðið. Plokkaðu laufin af ætiþistlinum, dýfðu kjötmikla hluta laufanna í olíu og edik-dressingu og skafðu kjötið af með tönnunum. Mmm, gott.
|