Svona veistu hvort humarinn er tilbúinn

Vinsælt frá Bahama-eyjum

Vatnakrabbi er aðalútflutningsvara Bahamaeyja. Hann líkist humri mjög í útliti en er ekki náskyldur honum. Hann er samt sem áður stundum kallaður klóarlaus frændi humarsins.

Togaðu í fálmarana

Maður borðar ekki humar á hverjum degi. Því er eðlilegt að maður spyrji sig: Hvernig veit maður hvenær hann er tilbúinn? Hér er ráð sem er mjög gagnlegt ef nýjársgestirnir eru að stíga inn úr dyrunum og reynsla þín af humri er takmörkuð. Gríptu í humarinn með töng. Togaðu í einn af smáu leggjunum eða fálmurunum. Ef leggurinn eða fálmarinn losnar auðveldlega er humarinn tilbúinn. Þú getur einnig séð það hvort humarinn er tilbúinn. Kjötið á að vera hvítt og þétt í sér og hrognin (ef þau eru til staðar) eiga að vera ljósappelsínugul og þétt í sér.