Svona veistu hvenær bökuðu kartöflurnar eru tilbúnar

Alex og hinar ræturnar

Þegar kartöflur eru bakaðar er mikilvægt að nota rétta gerð af kartöflum. Það gæti verið ein af eftirfarandi tegundum: Alex, Vilva, Premier, eða Gullauga. Þegar kart-öflurnar eru tilbúnar er þéttleiki þeirra slíkur að engu er líkara en skorið sé í ljúffengan eftirrétt en rjómakennd áferð þeirra gælir við tunguna og gerir bragðupplifunina einstaka.

Þrýstu á Alex

Hver í fjáranum er Alex? Hugsar þú kannski núna. Reyndar þekkir þú hann líklega. Hugsanlega heitir kartaflan sem er í sólbaði í ofninum þínum Alex. Og þetta leiðir til næstu spurningar: Eru kartöflurnar í ofninum tilbúnar? Þú gætir auðvitað litið á klukkuna. Ef klukkutími er liðinn er Alex örugglega viðbúinn að fara á disk og fá á sig smá smjör og steinselju. En þú getur líka bara potað aðeins í kartöfluna með fingrinum. Ef kartaflan gefur eftir er hún tilbúin.