|
|
Geldur kjúklingur?
Ef kjúklingurinn er geldur kallast hann geldhani. Kjötið er feitara og mörgum finnst það bragðbetra. Geldhani er dýrari en venjulegur kjúklingur og því er hann borðaður við hátíðleg tilefni.
|
Togaðu legginn af
Samkvæmt nýrri Evrópusambandsrannsókn er fjórði hver kjúklingur innan ESB með salmonellu. (Þessa stundina bíður um það bil ein milljón salmonellusprengja eftir að springa í grandalausum mögum Evrópubúa þegar þeir setjast við matborðið til að njóta kjúklingaréttanna sinna. Næring fyrir hugann.) Þetta er bara meðaltal svo þetta á ekkert endilega við um neinn af kjúklingunum fjórum sem þú ert að grilla í ofninum. En maður veit aldrei. Það er því best að elda kjúkling vel ef þú vilt koma í veg fyrir sýklaáhlaup með tilheyrandi afleiðingum. En hvenær er hann tilbúinn? Kjúkl-ingurinn er tilbúinn ef þú getur togað legginn af og tær safi rennur úr bringunni.
|