|
|
Sjóddu allegro
Pasta nýtur sín í sundi. Sjóddu það í hæfilegum skömmtum í léttsöltuðu vatni. Vatnið ætti að bullsjóða – já, allegro – fjörlegt og leikandi. Helltu öllu pastanu út í vatnið í einu og hrærðu vel. Hækkaðu hitann svo suðan komi strax upp að nýju.
|
Fyrst allegro, síðan al dente
Á hverju ári sogar heimsbyggðin upp í sig fleiri kílómetra af spagettíi. En hvernig veit maður hvenær það er tilbúið? Hér er aðeins ein leið möguleg: Veiddu bita úr pottinum og smakkaðu á honum. Ef pastað er enn hart í miðjunni er það ekki tilbúið. Ef það er aftur á móti þétt í sér og enn ekki alveg mjúkt í gegn er það tilbúið og ætti að skilja það strax frá vatninu. Þá er pastað „al dente“, eins og Ítalirnir segja um óaðfinnanlega soðið pasta. Bein þýðing væri „við tönn“ sem lýsir augnablikinu þegar pastað er akkúrat nægilega soðið án þess að vera ofsoðið.
|