Góð ráð leiða af sér fegurð

Fataherbergið

Innkaupaábending: Dýrt er ekki sama og gott

Verð endurspeglar ekki gæði. Verð endurspeglar ekki gæði. Jafnvel þó það geti verið mjög erfitt, sérstaklega fyrir kvenkynsverur, mælum við með því að þú skoðir meðhöndlunarmerkimiðann og gæði efnisins – áður en þú skoðar sjálfa(n) þig í speglinum eða afhendir kreditkortið þitt.

Efni

Frá satíni til jakkafata

Mánudagur: valdamikil athafnakona. Miðvikudagur: sakleysisleg sumarstúlka. Laugardagur: partýskvísa samkvæmt nýjustu tísku. Hraður lífsstíll nútímans gerir kröfu um réttan fatnað – ásamt nauðsynlegri þvottakörfu – og réttrar þekkingar. Hvaða flík þarf hvaða meðhöndlun?

Úps

Lífið er (sem betur fer) ekki blettalaust

Lífið er ekki blettalaust heldur fullt af frjókornum, fíflamjólk, grasi, blýantsstrikum, jarðarberjasafa, stöppuðum banönum, súkkulaði, varalit og öðru sem hefur tilhneigingu til að nuddast í fötin þín – og hafa áhrif á skap þitt.

Blettaleiðbeiningar

Húrra fyrir blettaleiðbeiningum

„Hún afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli….“ Já, afmælisdagar byrja oft með mörgum brosum og frábæru skapi. En brosin hafa tilhneigingu til að stirðna þegar litlu elskurnar ata sig út með súkkulaðiköku, jarðarberjaís, eplasafa, sykurkremi, leðju og litamerkipennum.

Þvottaábendingar

Vasaklútsbrellan og önnur þvottaheilræði

Margt hefur gerst síðan á tímum þvottabrettisins. Þvottavélar urðu algengar á árunum milli 1950 og 1960. Þurrkarar komu til sögunnar litlu síðar. Í dag eru flest heimili búin a.m.k. einu tæki, ef ekki báðum. Því miður kom þvottareynsla ekki með þessum tækjum.

Þvottakerfi

Veittu fötunum sérmeðferð

Þetta er það sem venjulega á sér stað: Fjölskyldan skilur allt eftir í drasli. Föt eru sett í fatakörfuna. Föt eru flokkuð. Dökk hrúga og ljós hrúga. Fötin eru þvegin við 40° C eða við 60° C. Þá byrjar allt aftur. Af því að við mannverur viljum svo gjarnan gera það sem við höfum alltaf gert. Allt í lagi – en jafnvel hversdagsföt græða af sérstakri meðferð öðru hverju.

Þurrkun – hvað nú?

Um mölflugur og krumpur

Hvers vegna ertu að kaupa gæðafatnað, fara vel með hann og fylgja öllum þvottaleiðbeiningum ef þú ætlar að bera hann fram sem fæðu fyrir mölflugur eða strauja í burtu allar góðu fyrirætlanirnar?

Ímyndaðu þér hrukkurnar á enninu á þér þegar litla prinsessan þín hefur einu sinni enn hellt niður stöppuðum banönum. Eða hugsaðu um áhyggjulínurnar sem koma þegar þú uppgötvar að hvíti þvotturinn þinn er orðinn bleikur. Nú skaltu ímynda þér að héðan í frá verði engar ástæður fyrir svona áhyggjum. Vegna þess að þú hefur lesið Úps spjaldanna á milli á köldu vetrarkvöldi og ert með á nótunum varðandi það nýjasta í þvottaráðleggingum. Eða þá að þú hefur alltaf Úps við hendina – sem gagnlegt uppsláttarhefti - til að losna við upplitaða liti, lykt, tómatsósubletti, mengandi efni, mölflugur, krumpaðan ferðafatnað eða önnur pirrandi tilvik.

Gorenje vonar að þú njótir Úps.