Húrra fyrir blettaleiðbeiningum

Hvernig á að fjarlægja bletti

Náið auðveldlega úr jafnvel þrálátustu óhreinindum og blettum

„Hún afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli….“ Já, afmælisdagar byrja oft með mörgum brosum og frábæru skapi. En brosin hafa tilhneigingu til að stirðna þegar litlu elskurnar ata sig út með súkkulaðiköku, jarðarberjaís, eplasafa, sykurkremi, leðju og litamerkipennum.

Hvernig í ósköpunum geturðu hreinsað nýkeypt afmælisföt aftur? Hvað gerðum við á síðasta ári? Hey, er ekki til bók um bletti í bílskúrnum undir jólaskreytingunum og fjóru vetrardekkjunum? Kannski, en núna ertu með eina í hendinni – svo notaðu hana ef um veislu er að ræða. Mundu eftir tvennu. 1 Fylgdu þvottaleiðbeiningunum á meðhöndlunarmerkimiðanum eftir hvert heilræði. 2 Prófaðu heilræðið á lítið áberandi stað (á röngunni eða saumi) til að vera fullviss um að flíkin þoli meðferðina.