Hvernig á að fjarlægja bletti

Náið auðveldlega úr jafnvel þrálátustu óhreinindum og blettum

Lím, asetóngrunnur Nuddið með asetóni eða olíulausum naglalakkseyði. Efni, sem gert er úr asetati, þolir ekki asetón!
Lím, steinolíugrunnur Klappið með bensíni.
Lím, epoxý Hér er ekkert sem hægt er að gera…. Þú munt aldrei ná blettinum úr.
Lím, etanól bútýl asetat grunnur Sjá lím, asetóngrunnur.
Lím, vatnsgrunnur Láttu fötin liggja í bleyti í heitu vatni yfir nótt.
Apríkósur Sjáið ávaxtasafi.
Bananar Skolið blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari bletturinn ekki alveg, sláið á með tærum uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf krefur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 klst., eða gerið hann rakan með útþynntri edikssýru eða vatnsperóxíði.
Bjór Fer úr við venjulegan þvott.
Ber Skolið blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari bletturinn ekki alveg, sláið á með tærum uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf krefur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 klst., eða gerið hann rakan með útþynntri edikssýru eða vatnsperóxíði.
Rófusafi/rauðkál Nuddið blettinn með tærum uppþvottalegi og hafið í plastpoka í 5-6 tíma. Ef efnið er hvítt sláðu létt á blettinn með 1% natríum hýpóklóríti eða blöndu úr 1 msk. natríum díþíóníti (bleikivökvi) í stórum bolla af volgu vatni og hreinsið. Notið ekki á viðkvæm efni eins og silki og ull.
Fuglaskítur Bíðið þangað til bletturinn er þurr. Burstið/skafið úr eins mikið og hægt er. Skrúbbið með blöndu úr 2 msk. af hvítu ediki og tveimur dl af vatni. Fari bletturinn ekki gerið hann rakan með tærum uppþvottalegi og látið vera í plastpoka í 4-6 tíma.
Blóð Föt sem þola þvott í heitu vatni eða þvott vegna lita ætti strax að skola í köldu vatni. Áður en flíkin er þvegin, leggið hana í bleyti í kalt saltvatn. Sláið létt á gamla bletti með 8% óþynntu ammóníaki.
Brunablettir Sjóðið brenndan fatnað við lágan hita með 1 bolla (250 ml) af sápu og ½ lítra af mjólk. Þú getur líka slegið létt á blettinn með hvítu ediki. Ef flíkin er úr bómull, ull eða silki sláið létt á blettinn með vetnisperoxíði. Vinnur aðeins á lítið sviðnum blettum.
Kertavax Setijð flíkina í plastpoka og látið hana í frystinn í nokkra tíma. Takið út og kroppið vaxið af. Ef örlítið vax er eftir, setjið eldhúsrúllubréf undir og yfir blettinn og straujið.
Tyggjó Setijð flíkina í plastpoka og látið hana í frystinn í nokkra tíma. Takið út og skrapið tyggjóið úr. Ef enn eru leifar af tyggjói eftir: setjið bómull vætta í bensíni á bakhlið blettsins þangað til bletturinn verður mjúkur. Nuddið blettinn varlega með bensíni.
Klór Ef klór hefur slettst á lituð föt þín, getur þú ekki gert neitt. Aflituðu blettirnir hverfa ekki. Ef einungis er um að ræða lítinn blett gætirðu reynt smá lagfæringu með vatnsheldum merkipenna í sama lit og flíkin.
Súkkulaði Bleytið blettinn í sápu, tærum uppþvottalegi eða fljótandi glýseríni og þvoið. Ef fitublettir verða eftir náið þið þeim með kolsýrðu vatni. Annar möguleiki: Bleyttu flíkina með venjulegri mjólk í u.þ.b. 15 mínútur og skrúbbaðu síðan blettinn þar til hann hverfur.
Kaffi Notið glýserín eða mjólk. Nuddið glýseríninu í blettinn og látið vera í yfir nótt. Eða nuddið glýseríninu á blettinn og bleytið í mjólk.
Lituð krít Klappaðu blettinn með bensíni og notaðu tusku eða mjúkan bursta/tannbursta.
Karrí Verulegur hluti í karrí er túmerik, sem er líka notað til að lita vefnað, svo það er bráðnauðsynlegt að bregðast fljótt við. Hellið glýseríni á blettinn og látið standa yfir nótt. Hellið svolitlu af tærum uppþvottalegi á blettinn og látið standa í 5-6 tíma. Annar möguleiki: Sláið létt á blettinn með blöndu af terpentínuolíu, 8% óblönduðu ammóníaki og brúnni sápu.
Fíflamjólk Hvít bómullarföt: Nuddið með brúnni sápu og látið standa yfir nótt. Skafið af og þurrkið með rökum klúti. Litir: Sláið létt á með blöndu af 1 dl af vatni, 1 dl af alkóhóli og 2 msk. af tærum uppþvottalegi.
  Sláið létt á með blöndu úr 1 hluta af hvítu ediki á móti 4 hlutum af vatni. Skolið. Eða gerið blettinn rakan með vatni, nuddið með svolitlum bökunarsóda og látið standa yfir nótt.
Egg Nuddið blettinn með tærum uppþvottalegi og hafið í plastpoka í 4-5 tíma.
Fita Flestir fitublettir fara úr við eðlilegan þvott, en þú getur verið öruggari ef þú slærð létt á blettinn með tærum uppþvottalegi og hefur í plastpoka í nokkra tíma.
Matarlitur Sláið létt á blettinn með tærum uppþvottalegi og látið bíða í 5-6 tíma. Annar möguleiki: Leggið í bleyti í nokkra tíma í blöndu þar sem helmingur er vatn og helmingur glýserín. Sé bletturinn enn greinanlegur eftir þvott, sláið létt á með bensíni eða blöndu af 25% ammóníaki og vatni (1 msk. ammóníak á móti 1 l af vatni).
Ávaxtasafi Skolið blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari bletturinn ekki alveg, sláið á með tærum uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf krefur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 klst., eða gerið hann rakan með útþynntri edikssýru eða vatnsperóxíði.
Gras Hellið glýseríni á blettinn og látið hann standa í 10-15 mínútur. Annar möguleiki: burstið með tannkremi.
Hárlitur Næstum ómögulegt að ná úr. Notið aflitunarefni ef flíkin er hvít eða með fastan lit.
Djús Skolið blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari bletturinn ekki alveg, sláið á með tærum uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf krefur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 klst., eða gerið hann rakan með útþynntri edikssýru eða vatnsperóxíði.
Tómatsósa Sláið létt á blettinn með tærum uppþvottalegi og látið bíða í 5-6 tíma. Annar möguleiki: Leggið í bleyti í nokkra tíma í blöndu þar sem helmingur er vatn og helmingur glýserín. Sé bletturinn enn greinanlegur eftir þvott, sláið létt á með bensíni eða blöndu af 25% ammóníaki og vatni (1 msk. ammóníak á móti 1 l af vatni).
Varalitur Setjið blettinn í venjulega mjólk. Skiptið um mjólk þegar hún dregur ekki lengur í sig lit frá varalitnum. Setjið tæran uppþvottalög á blettinn og látið hann standa í 4-6 tíma. Ef enn er litur sjáanlegur eftir þvott, sláið létt á með alkóhóli þegar flíkin er orðin þurr.
Húðkrem Notið bensín. Setjið eldhúsrúllupappír undir blettinn. Gerið rakt með bensíni kringum blettinn til að komast hjá litun og sláið síðan létt beint á hann. Haldið áfram þangað til bletturinn er næstum því horfinn.
Meik Gerið blettinn rakan með tærum uppþvottalegi og hafið í plastpoka í 5-6 tíma. Ef bletturinn er ekki alveg horfinn, skrúbbið hann með alkóhóli.
Augnháralitur Hellið uppþvottalegi á blettinn og hafið í plastpoka í 5-6 tíma. Ef það nægir ekki, sláið létt á blettinn með bensíni.
Mjólk Sláið létt á blettinn með tærum uppþvottalegi, lokið flíkina þétt í plastpoka og látið bíða yfir nótt. Ef enn eru fitublettir eftir, náið þið þeim með kolsýrðu vatni.
Mygla/mygluð föt Hverfur ef hægt er að þvo fatnaðinn á 60° C. Skrúbbið bletti á fötum, sem þola aðeins 40° C, með ediki. Ef flíkin lyktar enn af myglu, notið bleikilaust sótthreinsandi efni – fylgið leiðbeiningunum.
Mold Látið moldina ekki sitja í fötunum í langan tíma. Legðu fötin í bleyti í köldu vatni smá stund áður en þú nuddar þau með sápu eða tærum uppþvottalegi. Ef fitublettir eru eftir, náið þið þeim með kolsýrðu vatni.
Leðja Látið hana þorna. Burstið úr eins mikið og hægt er. Nuddið blettinn með tærum uppþvottalegi og hafið í plastpoka í 5-6 tíma.
Sinnep Hellið tærum uppþvottalegi á blettinn og hafið á í 5-6 tíma. Ef það eru smá blettaleifar eftir þvott, sláðu létt á blettinn með svolitlu bensíni eða blöndu af 25% ammóníaki og vatni (½ msk. á móti ½ l af vatni).
Naglalakk Setjið flíkina á rakadrægt undirlag. Sláið létt á með asetóni og þurrkið strax með eldhúsrúllu. Munið eftir að fjarlægja flíkina af undirlaginu svo bletturinn breiðst ekki út. Asetatefni þolir ekki asetón – notið amýl asetat í staðinn.
Olía Nuddið blettinn með smjöri. Annar möguleiki: Látið bensín í dropatali á blettinn og pressið með eldhúsrúllubréfi að innan verðu og að utan. Munið eftir að fjarlægja flíkina svo bletturinn breiði ekki úr sér eftir að pappírinn hefur dregið í sig olíuna.
Olíupastellitur Klappaðu blettinn með bensíni og notaðu tusku eða mjúkan bursta/tannbursta.
Málning, olíugrunnur Sláið létt á nýja bletti með svolítilli terpentínu. Skrúbbið þornaða bletti með brúnni sápu og látið standa yfir nótt í plastpoka. Skafið sápuna af og þurrkið með rökum klúti.
Málning, vatnsgrunnur, plast og akrýl Nuddið uppþvottalegi eða brúnni sápu á blettinn og látið standa yfir nótt í plastpoka. Brúnu sápuna verður að skafa af og ætti ekki að nota á silki eða ull.
Ferskja Skolið blettinn strax með eins heitu vatni og efnið þolir. Fari bletturinn ekki alveg, sláið á með tærum uppþvottalegi eða leggið í bleyti í heita mjólk. Ef þörf krefur, nuddið blettinn með fljótandi glýseríni og látið það vera á í 10 klst., eða gerið hann rakan með útþynntri edikssýru eða vatnsperóxíði.
Blýantur Nuddið með strokleðri. Annar möguleiki: Setjið tæran uppþvottalög á blettinn og látið standa í 5-6 tíma.
Ilmvatn Sláið létt á með blöndu úr jafnstórum skömmtum af vatni og alkóhóli.
Upplitun vegna ilmvatns Sláið létt á með edikblöndu úr 1 hluta af hvítu ediki á móti 4 hlutum af vatni. Skolið.
Frjókorn Fjarlægið laus frjókorn með því að ryksuga þau eða sláið létt á þau með límbandi. Sláið síðan létt á með tærum uppþvottalegi og látið standa yfir nótt.
Rauðvín Nýir blettir: Skolið í vatni eða hvítvíni. Eða dýfið í sjóðandi mjólk og sláið síðan létt á með tærum uppþvottalegi. Þurrir blettir: Setjið flíkina í frysti til að rauðvínið kristallist. Annar möguleiki: Setjið tæran uppþvottalög á blettinn og hafið á yfir nótt.
Trjákvoða Setjið flíkina á rakadrægt undirlag, sláið létt á með asetóni (ekki á asetatefni) eða blöndu af alkóhóli og terpentínu. Þurrkið strax með eldhúsrúllubréfi. Undirlagið drekkur líka í sig, svo fjarlægið flíkina til að forða því að bletturinn dreifi úr sér.
Ryð Setjið flíkina í bleyti í súrmjólk (hellið 2 msk/10 ml af ediki í mjólkurbolla til að sýra mjólkina) eða sítrónusafa og nuddið með salti. Setjið í sólarljós þar til flíkin er orðin þurr. Einnig er hægt að slá létt á blettinn með efni til að fjarlægja ryð, oxalsýru eða blöndu af 1 hluta af sítrónusýru og 9 hlutum af vatni.
Skóáburður Setjið glýserín á blettinn og látið standa yfir nótt.
Gosdrykkur Nuddið með ísköldu vatni. Ef það nægir ekki, gerið blettinn rakan með uppþvottalegi og látið standa í 4-5 tíma.
Sót Ryksugið eða sláið létt á með límhlið límbands, gerið blettinn rakan með tærum uppþvottalegi og hafið í plastpoka í 5-6 tíma.
Límmiðar Notið bensín. Setjið eldhúsrúllupappír undir blettinn. Gerið rakt með bensíni kringum blettinn til að komast hjá litun og sláið síðan létt beint á hann. Haldið áfram þangað til bletturinn er næstum því horfinn.
Te Dýfið flíkinni í venjulega mjólk þar til mjólkin hefur litast. Sláið þá létt á blettinn með með tærum uppþvottalegi og látið standa í 5-6 tíma í plastpoka. Annar möguleiki: Hellið glýseríni á blettinn og látið standa í 10-15 mín. Náið erfiðum blettum með alkóhóli.
Tóbak Bleytið flíkina í þvottaefni, sem inniheldur ensím, eða gerið bletti raka með þessu þvottaefni. Látið standa í nokkra tíma.
Tómatsósa Sláið létt á blettinn með tærum uppþvottalegi og látið bíða í 5-6 tíma. Annar möguleiki: Leggið í bleyti í nokkra tíma í blöndu þar sem helmingur er vatn og helmingur glýserín. Sé bletturinn enn greinanlegur eftir þvott, sláið létt á með bensíni eða blöndu af 25% ammóníaki og vatni (1 msk. ammóníak á móti 1 l af vatni).
Æla Fjarlægið eins mikið og hægt er. Nuddið með uppþvottalegi. Haft í plastpoka í 5-6 tíma.