Hvers vegna ertu að kaupa gæðafatnað, fara vel með hann og fylgja öllum þvottaleiðbeiningum ef þú ætlar að bera hann fram sem fæðu fyrir mölflugur eða strauja í burtu allar góðu fyrirætlanirnar?
Fatnaður er í raun viðsjárverður. Einmitt þegar þú ert búin að brjóta hann saman og stafla honum upp í litla bunka, pabbi, mamma, Frikki, handklæði, eldhúsdót o.s.frv. og ert í ánægðu „nú er þessu lokið, þetta var gott hjá þér“ skapi, koma nýjar áskoranir í ljós. Hvað með skyrturnar? Hvernig á að strauja þær? Og bindið, get ég straujað það? Úps, hvers vegna er lítið gat hérna – það geta ekki verið mölflugur!!! Hvernig get ég losnað við þær? Og getur það raunverulega verið hollt fyrir andrúmsloftið innan dyra að þurrka þvottinn inni? Hér finnur þú svörin sem þú leitar að.
|