|
|
Mundu eftir einnota svampi
Flíkur geta oft verið krumpaðar og haft hvassar fellingar þegar þær eru teknar upp úr töskum eftir ferðalag. Oft er hægt að bjarga málunum með því að setja einnota svamp milli brotanna þegar þú ert að brjóta flíkina saman. Þegar þú tekur upp úr töskunni eru fötin tilbúin fyrir herðatré eða skúffu.
|
Bað eða úði
Hafa fötin þín orðið krumpuð við að hafa verið pakkað niður í tösku og þú hefur ekki straujárn við hendina? Reyndu að hengja krumpuðu flíkurnar inni á baðherberginu og skrúfaðu frá heita vatninu. Lokaðu öllum dyrum og gluggum á baðherberginu. Það er gufan frá heita vatninu sem sogast í fötin og fjarlægir krumpurnar. Í því tilviki að þú ferðast og hefur ekki aðgang að baðherbergi, skaltu hafa með þér úðabrúsa. Úðaðu fötin með vatni og láttu flíkina liggja flata þar til hún er þurr. Hengdu fötin ekki upp því þá sléttist ekki úr þeim.
|