|
|
Ertu að hugsa um þurrkara?
Ef þú átt ekki þurrkara núna, en ert að velta því fyrir þér að kaupa hann, ættirðu að hafa eftirfarandi í huga: Þörf (þvottasnúran er ókeypis), orkunotkun (veldu A eða B), tegund (dæmigerðan rakaþétti fyrir íbúðir eða útblástursþurrkara fyrir hús) og getur rafkerfi þitt þolað viðbótarálagið (venjul. 230 v).
|
Þurrkaðu í Gorenje
Krumpuð föt eru vinsæl hjá sumum hópum, á hip hop stöðum, í strandpartýjum, á bóhemastöðum en ekki hjá yfirmönnum skrifstofunnar þegar stjórnarfundur á sér stað. Best væri að vera í straujuðu en sem betur fer þarf það ekki að hafa í för með sér notkun straujárns eða strauborðs. Þegar þú tromluþurrkar straufríar skyrtur í Groenje vél færðu straufría skyrtu - jafnvel þó þú standir ekki við dyrnar á þvottavélinni og bíðir eftir að kippa fötunum úr eftir að vélin er búin. Að hluta til vegna þess að þurrkarinn bætir köldu lofti við strax og fötin eru orðin þurr. Og að hluta til vegna þess að þurru fötin fara hringi í þurrkaranum á 5 mínúna fresti allt að klukkutíma eftir að kerfinu lýkur.
|