|
|
Hreinsið snúruna með korki
Eitt atriði varðandi þvottasnúrur er að þær hanga úti árið um kring. Og það hefur í för með sér að þær óhreinkast sem er slæmt þegar þú ert að fara að hengja upp nýþveginn þvott. Og hvernig geturðu hreinsað þær með fljótlegum og auðveldum hætti? Náðu þér í flöskutappa úr korki, skerðu sentimeters dæld í hann og hreinsaðu snúruna með því að renna honum eftir henni.
|
Hengdu svona upp
Sokkar: Á tánni eða á herðatré með klemmum til að spara pláss. Þá er líka auðveldara að taka þá niður. Sokkabuxur: Settu klemmuna á tærnar til að koma í veg fyrir að þær fjúki til og flækist í einhverju sem gæti valdið lykkjuföllum. Stuttermabolir/háskólabolir: Á saumunum í handarkrikanum og undir snúruna. Skyrtur/blússur: Á herðatré eða á snúruna með klemmurnar að neðan. Buxur og nærbuxur: Í mittið. Buxur sem þarf að pressa: Í brotunum á buxnaherðatréi. Pils/kjólar: Á herðatré/á herðasaumunum beint á snúruna. Jakkar: Á herðatré með rúnnuðum endum. Lín: Þvert yfir snúruna á röngunni.
|