Hvernig á að þurrka ullarleikfangabangsa án þess að hann fái illskukast

Faðmaðu dýrið að þér eftir þvott

Ef leikfangadýr þola ekki tromlu, geturðu þurrkað þau með öðrum aðferðum. Náðu í klút eða handlæði og faðmaðu dýrið að þér þangað til það er orðið þurrt. Eða reyndu að nota hárþurrku. Gættu þess bara að mörg leikfangadýr eru úr gerviefnum. Og í verstu tilvikum getur kviknað í þeim. Og það gæti skapað uppistand í barnaherberginu.

Körfuferðalag

Indæli litli bangsinn virðist alls ekki vera svo indæll þegar hann er þakinn leðju eftir dramatíska dýfu frá barnavagninum og niður á jöðina. Svo einungis er um eitt að ræða: Þvo – og síðan þurrka. En hvernig? Þeytiþurrka? Já, litli ullarbangsinn getur farið í þurrkarann svo fremi sem þú framkvæmir varúðarráðstafanir. Settu bangsann í sérstaka körfu sem er fylgihlutur sumra Gorenje þurrkara – og hentar vel viðkvæmum fatnaði, strigaskóm, hlaupaskóm, angóruteppum. Tromlan snýst í kringum körfuna, sem er algerlega kyrr.