|
|
Haltu þurrkaranum hreinum
Ef þú þurrkar föt í þurrkaranum mundu þá að hreinsa kusksigtið eftir hverja notkun til að halda loftstreymi eðlilegu. Safnist kusk saman getur það líka skapað eldhættu.
|
Notaðu þurrkarann
Tromluþurrkari er ómetanleg hjálp þegar þú þarft að þurrka föt á heimili þar sem einhver þjáist af ofnæmi. Sérstaklega ef þú ert með ofnæmi fyrir frjókornum - af því að ef þú ert það þá er það slæm hugmynd að þurrka fötin utandyra á frjókornatímanum. Frjókorn setjast á hrein föt og komast inn á heimilið með fötunum. Með tromluþurrkara losnarðu líka við að þurrka þvott inni í baðherbergi í „neyðartilvikum“. Þetta er óhentugt því það hækkar rakann, sem orsakar myglu og skapar gott umhverfi fyrir rykmaura.
|