Margt hefur gerst síðan á tímum þvottabrettisins. Þvottavélar urðu algengar á árunum milli 1950 og 1960. Þurrkarar komu til sögunnar litlu síðar. Í dag eru flest heimili búin a.m.k. einu tæki, ef ekki báðum. Því miður kom þvottareynsla ekki með þessum tækjum.
Hvað á ég að gera þegar hvíti borðdúkurinn minn hefur gulnað? Hvað á ég að gera þegar pínulítill rauður sokkur hefur litað allan rúmfatnaðinn? Hvernig á ég að koma í veg fyrir að litir upplitist? Hvernig get ég verið viss um að þvotturinn minn liti ekki enn frá sér? Hvað þarf ég raunverulega að nota mikið þvottefni? Hvaða umhverfisáhrif hefur notkun þvottasnúnings með sjóðheitu vatni og með viðbótarskolun? Er eitthvað sem ég þarf að muna áður en ég set vélina af stað? Æfð þvottakona gæti svarað þessum spurningum fyrir þig, en ef þú átt í erfiðleikum með að hafa upp á henni þegar þú þarft á henni að halda, þá er hér önnur leið: Haltu áfram að lesa.
|