| 1 |
Flokkið vel. Bæði eftir hitastigi (fötin ætti á þvo á þeim hita sem sagt er til um á merkimiðanum) og lit (dökk, ljós og marglit föt ætti að þvo sitt í hvoru lagi). |
| 2 |
Hafið þvottahrúguna ekki of stóra. Hvers vegna á að hrúga fötum inn í vélina ef þú getur hreinsað þau á einu vetfangi. Til dæmis: Taktu í burtu öll laus óhreinindi með fatabursta, þvoðu leðju og mold af vatnsheldu efni með rökum klúti og viðraðu peysur og aðra viðkvæmar flíkur á þvottasnúrunni. Það sem þú sjálf(ur) getur gert skaðar ekki umhverfið – og það hleðst ekki upp. |
| 3 |
Hafðu flíkurnar á röngunni, tómar og lokaðar. Flís, prjónaðar flíkur, velúr og gallabuxur ætti alltaf að þvo á röngunni. Annars slítur tromlan í þvottavélinni fötunum. Tæmdu alltaf vasa. Og renndu öllum rennilásum og festu franska rennilása. Ef þeir eru opnir geta þeir krækst í önnur föt og dregið til þræði eða lóað. |
| 4 |
Þvoið við lágt hitastig. Liti við 40° C og hvítan þvott við 60° C. Þegar þú þværð við minnsta mögulegan hita og notar ekki þurrkarann, spararðu rafmagn. Með því að gera það, hjálparðu til við að draga úr hlýnun jarðar og mengun loftsins með súlfat- og og nítrógensamböndum sem eru eitruð jurtum og dýrum. |
| 5 |
Veldu þvottaefni sem er merkt umhverfisvænt. Forðastu mýkingarefni og þvottaefni með ilmefnum, viðbættum lit og sjónrænum lýsingarefnum. Fötin verða samt hrein án þessara efna sem skaða umhverfið. Ef við gætum öll hætt að nota mýkingarefni gætum við losað umhverfið við mörg þúsund tonn af skaðlegum efnum árlega. Þegar þú velur umhverfisvænt þvottaefni og hættir að nota mýkingarefni og klór, minnkarðu losun á efnum út í vatnið sem bæði eru eitruð dýrum og jurtum. Öll þvottaefni og mýkingarefni, sem þú notar, enda í umhverfinu. |
| 6 |
Réttur skammtur. Harka vatnsins ætti að ákvarða eðlilegan skammt. Spurðu vatnsveitu staðarins eða bæjaryfirvöld. Föt verða ekki hreinni vegna rausnarlegrar nokunar á sápu og mýkingarefni. Alveg hið andstæða – þú mengar umhverfið og eykur hættu á ofnæmi hjá fjölskyldunni vegna sápuleifa í fötunum. Svo þú skalt lesa utan á pakkann. Þú munt sjá sápumagnið sem þörf er á til að þvo tiltekið magn af þvotti. |
| 7 |
Fyllið vélina og sleppið forþvottinum. Þú sparar vatn. Það er nauðsynlegt þar sem við neytum mikils vatns í stærstum hluta Evrópu. Því meira vatn sem við notum þeim mun minna er eftir í náttúrunni (ár og votlendi). Við notum u.þ.b. hundrað lítra af vatni á mann. Vatnið, sem við losum í skólpið, þarf að fara í gegnum vatnshreinsikerfi áður en hægt er að nota það aftur. Eyðsla vatns er einnig sóun á orku. |
| 8 |
Forðastu klór. Ef þú vilt bleikja fatnað skaltu nota vörur með natríum perkarbónati í stað klórs. |
| 9 |
Notaðu snúruna í stað þurrkarans. Það er mjög gott að hægt sé að setja mörg kíló af blautum þvotti í þurrkarann og hann í gang og fá þurr föt eftir klukkustund á háum hita. En það fer líka illa með fötin og umhverfið. Svo notaðu þvottasnúruna í staðinn. Hún hangir þarna í sama tilgangi. Í hvert skipti sem þú notar ekki þurrkara og hengir fötin upp til þerris í staðinn verndar þú umhverfið frá mörgum kílóum af koltvísýringi – og sparar um leið heimilisútgjöldin. |
| 10 |
Komið í veg fyrir hitaskaða. Það er auðvelt að strauja gat á viðkvæmt efni ef járnið er of heitt. Svo gerðu það þá ekki. Skoðaðu meðhöndlunarmerkimiðann áður en þú ferð að strauja. Jafnvel þó það séu perlur eða upphleypt mynstur á flíkinni, geturðu samt straujað hana – en gættu þín á skreytingunum með því að strauja flíkina á röngunni. |