Hvernig geturðu komist hjá því að gallabuxurnar þínar upplitist í þvotti

Slitmerki og bleiking?

Slitmerki: Gallabuxur eins og dökk föt geta myndað slitmerki. Þú getur komið í veg fyrir þau með því að þvo, þurrka og strauja gallabuxur á röngunni. Bleiking: Til að koma í veg fyrir að bleikja flíkina, notaðu þvottaefni án viðbætts bleikiefnis – athugaðu umbúðirnar eða notaðu þvottaefni ætlað fyrir lituð föt þar sem það er ekki með bleikiefni í sér.

Bættu við ediki

Hér heilræði til heiðurs John Wayne, Lucky Luke og öðrum myndarlegum kúrekahetjum sem sjá rautt þegar gallabuxurnar þeirra upplitast í þvotti. Þú getur komið í veg fyrir það svona: Legðu gallbuxurnar í bleyti í 5 lítra af vatni og bættu út í það 4 msk. af ediki og láttu þær liggja í ½ klst. Þvoið þær síðan samkvæmt meðhöndlunarmerkimiðanum. Edik heldur litnum í efninu. Og mundu eftir þessari ráðleggingu ef þú ert meira fyrir tískulegra efni, s.s. skáofnar buxur sem fást í mörgum litum. Edik virkar á þær líka.