Hvernig á að koma í veg fyrir að lituð föt upplitist

Salt er í almennri notkun

Salt er hægt að nota á margan hátt. Á grillið (salt á kol hefur þau áhrif að þau gefa frá sér minni reyk og þau endast lengur). Fyrir blóm (nýafskorin blóm endast betur ef svolítið salt er sett í vatnið). Með eggjum (sjóðið með salt í vatninu, þá verður auðveldara að ná skurninni af).

Þvoið í saltvatni

Notkun og þvottur fata geta reynst fötunum erfið með þeim afleiðingum að þau virðast snjáð og slitin, jafnvel þó þau séu tiltölulega ný. Hvað getur þú gert? 1 Hent öllum fötunum og notið þess að hafa ástæðu til að versla eða, 2 notað fyrirbyggjandi aðgerðir. Samkvæmt gömlu þvottaráði, geturðu haldið litnum í fötunum þínum með því að setja fötin í kalt saltvatn áður en þú þværð þau í fyrsta sinn. Setjið lófafylli af salti í fötu með vatni.