|
|
Skjannahvítt – sjónræn blekking
Sjónræn lýsingarefni eru venjulega blekkingarsnillingar sem láta gulnuð eða gránuð föt virðast hvítari en þau eru. Blekkingin er framkvæmd með mörgum efnum sem hafa nafnið sjónræn lýsingarefni. Efnin breyta sumum af ósýnilegum útfjólubláum geislum sólarinnar í sýnilegt hvítt ljós með styttri bylgjulengd.
|
Láttu hann hreyfast í vatninu
Það er dapurlegt þegar handútsaumaður borðdúkur, upplagður til að nota að sumri til, er allt í einu gulur og blettóttur. Reyndar getur dúkurinn orðið mjög fallegur aftur. Legðu hann fyrst í bleyti: Sjóddu 10 lítra af vatni. Leystu upp 0,25 desilítra af sódadufti í vatninu Láttu það kólna og settu síðan borðdúkinn í upplausnina og láttu hann liggja í bleyti í 12 tíma. Sjóddu hann síðan: Sjóddu 10 lítra af vatni með 10 msk. af þvottaflögum. Settu dúkinn í þegar hitinn er 60° C. Láttu dúkinn hreyfast til í 20 mínútur. Skolaðu hann síðan þrisvar í hreinu vatni (síðasta skiptið helst í vatni án steinefna). Nú er borðdúkurinn orðinn hvítur aftur.
|