Hvernig hægt er að vera viss um krakkar geti farið út í hvaða veðri sem er og leikið sér

Að leggja í bleyti

Þegar litlu krakkarnir koma heim í mjög óhreinum fatnaði, er praktískt að vera með forþvottarkerfi og já, það er á öllum Gorenje þvottavélum. Í þessu þvottakerfi liggja föt í bleyti í 40 mínútur meðan tromlan veltist áður en það þvottakerfi, sem valið var, byrjar. Svo þú þarft ekki að tvíþvo fötin til að fá þau hrein.

Láttu snjógallann veltast í þurrkaranum

Leðjupollar, snjóskaflar og vatnspollar hafa alltaf haft mikið aðdráttarafl fyrir krakka. Svo við erum í vanda ef snjógallinn hefur misst fráhrindandi eiginleika sína varðandi vatn og óhreinindi (já, það gerist ef hann hefur verið þveginn oft eins og reyndin er um svona flíkur). Hvað þá? Þurrkaðu snjógallann í tromluþurrkaranum eftir þvott, þ.e.a.s ef hann þolir þurrkun. Snjógallinn fær aftur viðnám sitt og litla skottið fær aftur frelsi til að hreyfa sig. Ekki nóg? Kauptu vatnsvaraefni og settu í forþvottinn.