Hvernig á að athuga hvort lituð efni lita enn frá sér

Enn of mikill litur?

Losið ykkur við óæskilegan lit í fötum með því að þvo fatnaðinn í upplausn með sápuflögum: Hitið 10 lítra af vatni upp í 70° C (ef flíkin þolir þann hita). Leysið upp 2 dl af lyktarlausum sápuflögum í vatninu. Leggið upplituðu flíkina í bleyti. Skiptu um sápuvatnið og endurtaktu þangað til vatnið er orðið tært. Varist að nota klór, hann skemmir fatnaðinn.

Notaðu vasaklútsbrelluna

Of mikið er gott. Á bankareikningnum þínum. Í kímnigáfunni þinni. Í fjármálunum. En ekki í þvottavélinni þar sem umfram litir geta runnið í burtu. Þvoðu alltaf nýjan litaðan vefnað sér og ef þörf krefur, handþvoðu í nokkur fyrstu skiptin. Hvenær hefur umfram liturinn þvegist úr? Prófaðu það með vasaklútsbrellunni. Þvoðu hvítan vasaklút með lituðu flíkinni. Ef vasaklúturinn er enn hvítur gefur flíkin ekki frá sér lit.