Hvernig algengustu afsakanir vegna upplitaðs fatnaðar hljóma

Er pláss fyrir meira? Handprófunin

Þegar þú hefur lokið við að flokka fatnaðinn í hrúgur er mögulegt að þar komi í ljós drapplituð lítil hrúga og risastór hrúga af dökkum fatnaði. Og þú reynir með erfiðismunum að troða allri stóru hrúgunni í vélina. Svona mikið geturðu sett í þvottavélina: Fylltu vélina nokkurn veginn af fötum. Pláss á að vera fyrir upprétta hönd sem sett er yfir fötin í tromlunni.

Slæm flokkun

Alveg frá því í vöggu höfum við fengið að læra að heimurinn fer eftir kerfi. Gaffallinn er til vinstri. Vegfarendur ganga á gangstéttinni. Grænt þýðir að leyfilegt er að fara yfir. Rautt þýðir stöðvun. Flest okkar hafa lært að hlýða, en rök eru ekki alltaf ráðandi í þvottaherberginu. Margir flokka fötin eftir „þetta verður í lagi“ reglunni. Og nei, það er ekki alltaf í lagi, svo við mælum með: Komdu þér upp flokkunarkerfi. Flokkaðu þvott eftir hitaþoli, þvottkerfi og lit. Hvítir/ljósir litir saman, dökkir/ sterkir litir saman. Ull sér. Þvoið þvott sem þolir suðu sérstaklega.