|
|
Ensím fjarlægja svita
Ensím, þau sem finna má í þvottaefni, gegna miklu hlutverki við að fjarlægja bletti úr fötum. Þau er auðveldast að virkja við 40° C. Þess vegna hefst hver þvottasnúningur yfir 50° C með 15 mínútum á 40° C. Þegar því stigi er lokið – og blettirnir hafa verið fjarlægðir – heldur þvotturinn áfram á völdu hitastigi.
|
Já við trimmi
Sviti er góður (það er eitthvað við það að því meira sem þú svitnar í því betra formi ertu). En sviti lyktar svo vægt sé til orða tekið. Svo skiljanlega eru margir sem henda líkamsræktarfötunum sínum beint í þvottavélina og þvo af fullum krafti eftir svitaþrungna lotu á stígvélinni eða í skóginum. En það er ekki nauðsynlegt. Fötin eru ekki óhrein, aðeins svitaþrungin og þurfa ekki þvott við 60° C. Veldu lægri hita og viðkvæmari þvott. Veldu t.d. sérstakt kerfi, Trimmið, í Gorenje vélunum sem þvær á 40° C og þeytivindur á 1000 snúningum. Svo bæði fötin þín og umhverfið geti haldið lagi.
|