Hvernig komast má hjá því að eyða degi í að strauja í stað þess að versla

Einnig undirbúin(n) fyrir framtíðina

Gorenje þvottavélar og þurrkarar eru útbúin sérstökum eiginleikum sem gera það mögulegt að uppfæra þau með nýjum kerfum og aðgerðum eftir því sem þau eru þróuð. Þú þarft ekki nýja vél til að halda í við ný kerfi okkar.

Veldu straufrítt

Þegar þú þværð, er fötunum hent fram og til baka toguð og teygð sem getur orðið til þess að jafnvel hinar bestu skyrtur verði að bolta úti í horni. Og þá eigum við við vandamál að etja. Því krumpaðar skyrtur þarf að strauja. Þú getur alltaf hætt að ganga í straujuðum fötum (hæ, boss, jááá, ég verð í hettupeysunni minni á viðskiptafundinum í Brussel). Eða þú gætir valið sérstakt kerfi sem bætir meira vatni við og þvær á minni þeytivindingarhraða við fyrstu og síðustu þeytivindingu svo fötin verða ekki eins klesst og krumpuð. Til dæmis straufría kerfið. Notaðu það og straujaðu minna. Í staðinn geturðu farið út með vinum þínum.