| Asetat |
Þræðir úr gerviefni með fallegri áferð sem klæða þig vel. Líkist silki. Oft notað sem fóður í yfirhafnir, jakka, o.s.frv. Asetat er ekki mjög sterkt og er veikara vegna efna sem notuð eru á það. Krumpast mikið í þvotti. Þvoið við 40° C. Straujað við vægan hita. |
| Akrýl |
Einnig þekkt sem orlon, courtelle og dralon. Þolir sólarljós og flest efni. Endist svipað og nælon og pólýester. Missir lögun við þvott. Þvoist við 40° C, mælt er með hægum þvottasnúningi. Þeytiþurrkið ekki. |
| Angóra |
Náttúruleg dýraafurð. Er af kanínum. Handþvoist eins og ull – sjáið ull. Angóra loðir við svo þvoið hana sér. |
| Bómull |
Fatnaður úr bómull er þægilegur, endingargóður, auðveldur í þvotti og er afar rakadrægur. Gæði bómullarinnar fer eftir hreinleika hennar, trefjalengd og litun. Hvíta bómull má þvo í heitu vatni. Litaða bómull ætti að þvo eins og mælt er með á meðhöndlunarmerkimiðanum, því gæði litarins ákvarða þvottahitastig. |
| Strigi |
Þungt ofið náttúrulegt efni úr bómull og lérefti. Notað til að búa til hluti eins og töskur, skó, einkennisfatnað og útifatnað. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem það er úr. |
| Siffon |
Gagnsæi þess, léttleiki og sveigjanleiki gera það að verkum að það er eftirsótt í brúðarkjóla. Er úr silki og ætti að meðhöndla á sama hátt – sem þýðir með varúð! Oft er mælt með handþvotti. Eða vægum þvottasnúningi við 30° C með sérstaklega mildu þvottaefni. Þeytiþurrkið ekki. |
| Chintz |
Fíngerður þráður, þéttofin bómull. Slétt og flöt áferð. Farið með eins og bómull, en takið eftir meðhöndlunarmerkingunni – chinz getur líka verið úr blöndu af bómull og pólýester sem getur hafa verið meðhöndlað með vaxi. |
| Damask |
Heitir eftir borginni Damaskus þar sem Marco Polo tók vörur um borð. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem hún er úr. Damask er sérstök gerð vefnaðar, svo damaskefni getur verið búið til úr margs konar efnum, s.s. silki, bómull, og pólýester. Upphaflega var damask alltaf gert úr bómull. Seinna var silki einnig notað (silkidamask þekkist líka sem jaquard). Nú til dags er hægt að fá damask úr blöndu vefnaðarefna – t.d. með pólýester. |
| Dením |
Kúrekaefni. Þétt skáofin bómull eða bómull og pólýesterblanda. Farið með eins og litað bómullarefni þar sem það eru gæði litarins sem segja til um þvottahitastig – venjulega 40° C. Þvoið og strauið alltaf á röngunni. Þeytiþurrkið. |
| Elastín |
Teygjuþræðir. Notað í sundföt, undirföt, sokka, buxur. Getur venjulega verið meðhöndlað á sama hátt og efnið sem það er blandað. Bleikið ekki með klór. |
| Gabardín |
Þétt ofið efni úr ull eða blanda af pólýester og ull. Gabardín er sérstakur vefnaður. Venjulega gert úr ull, en er einnig gert úr bómull og gerviefni. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem það er úr. |
| Holir þræðir |
Holir gerviefnisþræðir oft úr pólýester. Holu þræðirnir auka einangrunargetuna. Þekkist líka undir nafninu hollofil. Má þvo við 60° C og þeytiþurrka við lágt hitastig. |
| Isoli |
Kallað þessu nafni eftir æfingagallaefni. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem það er úr. |
| Blúnda |
Kemur í silki, bómull og gerviefni. Oft kallað eftir frönskum borgum sem sérhæfðu sig í framleiðslu hennar, s.s. Chantilly, Valenciennes og Calais. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem hún er úr. |
| Lambsull |
Náttúruleg dýraafurð. Lambsull er úr fyrsta rúningi og fínni, léttari og mýkri en sú ull sem síðar verður til. Þvoist eins og ull – sjáið ull. |
| Léreft |
Náttúruleg jurtaafurð sem krumpast mikið og erfitt er að strauja. Hleypur við þvott. Þvottaefni má ekki innihalda bleikiefni sem getur skaðað efnið. Skrúbbið ekki. Best er að þvo léreft með vægum þvottasnúningi. |
| Efni búið til af mönnum |
Efni framleitt úr þráðum sem skipta má í tvo flokka – endurgerðir þræðir og þræðir úr gerviefni. Meðhöndlið varlega. Fylgið leiðbeiningum fyrir hvert efni. |
| Míkróþræðir |
Sérstaklega mjóir þræðir úr gervi-/kemísku efni Einstaklega samanþjappaðir en samt geta þeir andað. Efnið er notað í íþróttafatnaði (vörn gegn vindi og vatni) og í nærfatnað (hleypir út lofti og raka en helst þurrt). Þvoist í hægum þvottasnúningi aðeins með auknu vatni við 30° C. Notið ekki þeytivindu eða þeytiþurrkun. |
| Módal |
Módalþræðir eru gervisellulósaþræðir en með annarri innri gerð en viskós. Þvoist við 60° C og straujað á hæsta hita. Má þeytiþurrka. |
| Nælon |
Nælon eða pólýamíð tekur fram öllu öðru trefjaefni hvað snertir álagsstyrkleika og það rifnar ekki auðveldlega. Nælon er viðkvæmt fyrir ljósi og gulnar og verður stökkt í sólarljósi. Notað til að styrkja hvers kyns íþróttafatnað og sömuleiðis í töskur og aðra fylgihluti. Þvoist við 40° C. |
| Olíudúkur |
Yfirborðið meðhöndlað með vaxi. Næstum því vatnsheldur. Þvoið hvorki né þurrhreinsið. Hreinsið með rökum klúti eða sturtuspúlið. Haldið við með því að vaxbera. |
| Pólýamíð |
Hleypur ekki við þvott. Undirföt, blússur og sokkar eru þvegnir við 40° C á venjulegu kerfi í þvottavél með litlum þvotti. Létt efni má þvo á 60° C, en fatnaðurinn er yfirleitt orðinn hreinn við 40° C. Varleg vinding og þeytiþurrkið við að hámarki 60° C. |
| Pólýester |
Einnig þekkt undir nöfnunum terylene, diolen, dacron og tetoron. Heldur lögun sinni og er endingargott. Þolir sólarljós og flest efni. Er ekki eins viðkvæmt fyrir hita og önnur gerviefni. Notað í alls konar flíkur, oft blandað bómull og viskósefni. Þvoist við 40° C. |
| Pólýesterfylling |
Þvoið jakka og flíkur úr bómull/pólýester eða úr næloni með pólýesterfyllingu í ekki alveg fullri þvottavél. Þvoið ljósa liti við 60° C, liti við 40° C. Þeytivindið við hitastig sem mælt er með fyrir flíkina. |
| Pólýprópýlen |
Léttari en önnur ofin trefjaefni. Sterkt, undanlátssamt og þolir nær öll efni en er viðkvæmt fyrir ljósi og hita. Notað m.a. í íþróttanærföt. Þvoist við 40° C. |
| Poplín |
Þéttofið efni með helmingi fleiri láréttum þráðum en lóðréttum. Kemur í hreinni bómull og bómull/pólýester. Notað bæði í skyrtur og pólóskyrtur. Sérstakur vefnaður. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem það er úr. |
| PVC-efni |
Föt úr plastþöktu efni úr PVC, s.s. regnföt, eru þvegin í vél sem er ekki mjög hlaðin við 40° C. PVC-efni þolir ekki þeytivindu eða þurrkun í þurrkara. Fatnaði úr PVC-efni á að fleygja á sama hátt og öðrum hættulegum eiturefnum. |
| Silki |
Silki er fíngerður þráður, mjúkur, mjög gljándi, krumpast aðeins lítillega og er með góða einangrunarhæfni. Eins og önnur náttúruleg trefjaefni hefur það mikla rakadrægni og er því þægilegt til notkunar. Það verður ekki rafmagnað. Handþvoið eða þvoið með mildu þvottaefni og á viðeigandi kerfi. Þeytiþurrkið aldrei. |
| Íþróttaull |
Sérstaklega meðhöndluð ull sem heldur notandanum svölum jafnvel við líkamsáreynslu. Auðvelt að þvo. Ekki mjög sterk. Gert úr samblandi ullar og polýesters. Þvoið við 40° C. Þurrkið í þurrkara við lágt hitastig. |
| Tríasetat |
Er með betri nýtingargæði en asetat – krumpast minna í þvotti, þolir sólarbirtu og er sterkara. Ekki sérstaklega sterkt. Þvegið við 60° C – þó litur efnisins geti gefið til kynna að þvo ætti við 40° C. |
| Tjull |
Tjull lítur út eins og net. Það var upphaflega alltaf gert úr silki en í dag er það jafnoft gert úr gerviefnum (venjulega pólýester). Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem það er úr. |
| Ull |
Af kindum, hestum, kameldýrum, kanínum og öðrum síðhærðum dýrategundum. Þvoið ullarföt á ullarkerfinu. Ull lóast og hleypur auðveldlega við of mikla meðhöndlun. Ull má ekki liggja í bleyti. Þvoið á ullarkerfi með mildri sápu án ensíma og bleikiefnis. Klór skaðar ull. Ull má þeytivinda varlega en ekki þurrka í þurrkara. |
| Velúr |
Upphaflega ofið eingöngu úr silki. Í dag er velúr einnig gert úr bómull og viskósi. Velúr hefur hefur meiri og mýkri ló heldur en flauel og plussefni. Fylgið meðhöndlunarmerkingum þess vefnaðar sem það er úr. |
| Viskós |
Mest notað af s.n. endurnýttum trefjum. Þægilega mjúkt til notkunar og dregur í sig líkamsraka eins og bómullarflík. Viskós er ekki sterkt þegar það er blautt og krumpast heilmikið – getur líka hlaupið við þvott. Þvoist á 60° C – þó litur fatanna geti gefið til kynna að þvo ætti við 40° C. |