Silki er ekta náttúrulegt efni. Það er skýringin á því hvað það er yndislegt viðkomu og þægilegt á líkamanum – og á hörundinu. Ef það verður samt matt og leiðinlegt skaltu setja sykurmola í skolvindinguna. Þetta veitir silkinu fyllingu.
Hugsaðu um sex atriði
Notaðu alltaf netþvottapoka þegar þú þværð í þvottavél.
Kræktu öllum krókum áður en þú setur í þvottavél svo þeir krækist ekki í blúndur.
Mundu að blúndur þola ekki háan hita ef þú leggur brjóstahaldarana þína í bleyti.
Notaðu þvottefni án efna sem eiga að lýsa upp þvottinn – annars verða hvítu brjóstahaldararnir þínir gulir.
Lagaðu brjóstahaldara til þegar þeir eru ennþá rakir, sérstaklega ef þeir eru með fyllingu.
Hengdu brjóstahaldara upp milli skálanna – annars tognar á hlírunum.