|
|
Hið hvíta gull
Í Bandaríkjunum bjó enskur innflytjandi til fyrsta bómullarginið kringum 1790. Núna er bómull 50 prósent af vefnaðarnotkun heimsins. Á hverju ári eru framleiddir á heimsvísu u.þ.b. 25 milljarðar kílóa af hrárri bómull að verðmæti 20 milljónir Bandaríkjadala. Það er því ekki skrýtið að bómull sé nefnd „hið hvíta gull“.
|
Kauptu lífrænt ræktaða bómull
Ert þú sú manngerð sem finnst ekki taka því að kynna þér leiðbeiningarmerki þegar þú leitar að endingargóðu efni sem er umhverfisvænt? Farðu þá strax að lífrænu bómullinni. Úrvalið er svolítið takmarkað (innan við 1 prósent af heildarbómullarframleiðslu). Engu að síður færðu föt sem þola þvott í þvottavél, hátt hitastig, öll þvottefni, þeytiþurrkun og hæsta hitastig við straujun. Og þau eru framleidd án notkunar eiturefna eða tilbúins áburðar sem skaða alvarlega bæði manneskjur og umhverfi.
|