Hvernig má komast hjá ló á angórupeysunni

Hné í buxum úr ullarefni?

Ull er viðkvæmt en þrjóskt efni. Um leið og krumpur eða hné koma í ljós í skálmum buxna úr ullarefni, er erfitt að lagfæra það vegna þess að þræðirnir hafa riðlast. Krumpur er hægt að laga þegar föt eru rök – t.d. vegna svita eða ef þú lendir í hellidembu. Krumpur fara ef sett er á þær gufa eða við pressun.

Vaggið þeim til að hreinsa

Ull og börn hafa margt sameiginlegt. Þau eru mjúk, lykta vel og þeim þarf að sinna af mýkt þegar þau eru þvegin. Hægt og rólega. Þú skalt gleyma því að hrista, toga í eða teygja. Ef þú gerir það ekki fer barnið að gráta og ló kemur á ullina. Við skulum einblína á það síðarnefnda. Hvers vegna kemur ló á ull? Ullarþræðir hafa nokkurs konar göddótta flösu á yfirborðinu sem hengir sig hver á aðra þegar flíkin er undin eða nudduð. Reyndu þetta í næsta skipti sem þú þværð. Notaðu ullarkerfi þvottavélarinnar sem hefur hliðsjón af einkennum ullarinnar. Ullinni er vaggað varlega fram og til baka, fram og til baka, fram og til baka.