Hvernig þú átt að kaupa vefnað sem er góður fyrir þig

Mamma – hvað er blettur??

Nanótæknilega gerður vefnaður hefur verið á markaðnum síðan árið 2000 og þróun hans eykst stöðugt. Hönnuðir munu breyta því hvernig við lifum á næsta áratug með fleiri sniðugum efnum. Svo hver veit? Kannski verða blettaráðleggingarnar í þessari bók skrítin minning liðinna daga þegar eitthvað var til sem kallaðist blettur...

Veldu fatnað sem hefur háa greindarvísitölu

Föt geta verið verið skynsöm. Nú á dögum getur vefnaður litið út og verið viðkomu eins og venjuleg bómull, ull, viskós og nælon en getur haft dulda eiginleika. Dæmi: Því meira sem boxari svitnar þeim mun meira angar hann af rósailmi. Dæmi: Þegar sjúklingur þarf meiri lyf fær hann þau frá fötunum. Dæmi: Þegar sá litli hellir niður á sig hrinda buxurnar sjálfkrafa frá sér óhreinindum og blettum. Skýring: Skynsamur vefnaður bregst við notendum eða umhverfi – sjálfkrafa.