Hvernig á að vernda húðina fyrir skaðlegum sólargeislum

Reykingar og hampur

Reykjanlegur hampur – þ.e.a.s. marijúana – er ólöglegur vegna skynvillandi áhrifa þess. Á hinn bóginn hefur hampjurtin öðlast meiri viðurkenningu í iðnaði vegna styrks síns. Hampur er gjarnan notaður í plast og pappír en fyrirtæki eru að vakna til meðvitundar um heilsusamleg áhrif í fæðu, kremum og hárþvottaefnum.

Vertu í hampi

Hampur? Er það ekki það sem reykt var á árunum 1960- 1970? Jú, en fatnaður úr hampi er þægilegur, léttur, andar, er rakadrægur, er fjórum sinnum sterkari en bómull og þolir þvott betur. Og hann heldur sólargeislunum frá líkamanum af því að efnið hleypir ekki útfjólubláu geislunum í gegn. Enn fremur er hampur ræktaður án notkunar skordýraeiturs, eiturefna eða tilbúins áburðar. Að auki þarf hann tiltölulega lítið vatn, sem er líka gott fyrir umhverfið. Þess vegna ryður hampur sér í ríkara mæli til rúms – sérstaklega í Bandaríkjunum, þar sem bæði Armani og tískuvörumerkið Patagonia framleiða fatnað úr hampi.