|
|
Þurrhreinsun árið 1845
Sagan segir að þurrhreinsun hafi orðið starfsgrein þegar Frakkinn Jean-Baptiste Jolly uppgötvaði að kamfóra frá ljóskeri, sem datt niður, náði olíublettum úr borðdúk. Hvort sem þetta er 100 prósent rétt eða ekki, þá er staðreyndin sú að Jolly opnaði fyrstu þurrhreinsiverksmiðjuna í París kringum 1845.
|
Athugaðu hvort þurfi að þurrhreinsa þau
Við ætlum ekki að móðga neinn, en við getum með sanni sagt að skynsemin ræður ekki alltaf þegar tvífættir X-litningar fara að versla. Tíska, ímynd og „rassinn lítur vel út í þessum kjól“ eru miklu mikilvægari en meðhöndlunarmerkimiðinn. Og niðurstaðan er? Konan kemur heim með enn eina mjög fallega tískuvöru, sem hún varð að fá en er mjög erfitt að hreinsa, og flíkin lendir því á botni þvottakörfunnar. Og hvað ættu konur að læra af þessu (já, vitum að Róm var ekki byggð á einum degi)? Skoðaðu meðhöndlunarmerkimiðann áður en þú skoðar sjálfa þig.
|