Hvernig þú getur komið í veg fyrir að þú hendir eitruðum skriðbuxum í þvottakröfuna

Frá toppi til táa

Áprentanir með PVC-efni eru mikið notaðar á stuttermaboli, háskólapeysur, barnafatnað og vinnuföt. Það er kallað plastisól eða silkiprent. Veitið því athygli að þessi viðnámsmynstur úr plasti undir barnasokkum geta verið úr PVC-efni.

Þekktu PVC-efnin

Aukinni fjölskyldustærð fylgir fjölgun barnafatnaðar. En keyptu á gagnrýninn hátt. Plastbangsarnir sem eru áprentaðir á sakleysilegan skriðgalla eru oft úr PVC-efni, sem hægt er að mýkja með þalötum (sem eru jafneitraðir og þeir hljóma). Þalöt geta valdið krabbameini og komið af stað húðsjúkdómi. Því miður er mjög erfitt að sjá á áprentuðu efni hvort það er með eða án PVC-efnis. Þú getur notað þá þumalfingurreglu að kaupa frekar föt með ísaumuðum myndum eða með áprentun í lit sem ekki minnir á málningu. Þú getur líka spurst fyrir í versluninni hvort fatnaðurinn sé skreyttur með PVC-efni áður en þú kaupir hann.