|
|
Þú hefur ekki þyngst
Flest náttúrleg efni hlaupa í þvotti. Og hættan á því að stærðin L verði að M er jafnvel enn meiri ef þú þværð við of hátt hitastig. Ef þú svo velur þann kost að þurrka í þurrkara á eftir, er enn meiri möguleiki á því að flíkin hlaupi enn meira. Dragðu því djúpt að þér andann. Þröng föt þýða ekki endilega að þú hafir bætt á þig. Það getur þýtt að fötin hafi minnkað.
|
Kauptu latex
Bómullarstuttermabolur, bómullarstuttermabolur, bómullarstuttermab, bómullarstutterma, bómull, bómu, bóm. Bómullarföt hlaupa oft í þvotti alveg eins og hör, silki, viskós, ull og annað náttúrulegt efni. Svo ef þú vilt komast hjá því að föt hlaupi geturðu gert tvennt: 1 Kauptu föt úr pólýester, næloni, latexi akrýl, pólýamíði eða öðrum gerviefnum eða 2 Kauptu föt sem eru stærri en raunveruleg stærð þín svo svigrúm sé fyrir að fötin hlaupi. Ef þú ert í vafa um hvort þú heldur á bómullarnærbuxum eða úr latexi skoðaðu merkimiðann – eða jafnvel það sem betra er, spurðu afgreiðslumanninn...
|