Hvernig komast má hjá því að kaupa fatnað sem er fullur eiturefna

Betra að svitna en að fá í sig eitur

Föt, sem nota á við mikla hreyfingu, geta innihaldið tríklósan til að losna við svitalykt. Efnið skaðar umhverfið og er ónauðsynlegt ef flíkin er þvegin reglulega. Innihaldslýsing fata tilgreinir ekki skýrt hvort tríklósan hefur verið sett í efnið. En hafi það verið gert getur verið að það sé sagt vinna á bakteríum og vera sótthreinsandi.

Láttu nefið ráða

Konur eru venjulega góðar að þefa uppi kostakaup. Og sama nefið getur í raun og veru fundið á lyktinni föt sem eru ekki með heilsuskaðleg efni. Lyktar flíkin af aukaefnum? Lyktar flíkin af ilmvatni sem gæti hafa verið komið fyrir til að hylja lykt af öðrum efnum? Ef svo er þá er hætta á að það geti verið aukaefni í flíkinni (skordýraeitur, þungir málmar, litarefni, mýkingarefni, rotvarnarefni – því miður, þá er þetta sannleikur). Við snertingu við húðina geta aukaefnin komið af stað ofnæmi eða krabbameini, auk líffæraskaða eða skaðað hormónakerfi okkar.