Hverng á að kaupa gæðaflíkur sem vernda bæði líkama og umhverfi

Evrópa verndar umhverfið

Blómið og svanurinn eru ekki einu umhverfismerkin sem eru á markaðnum. Sem betur hafa mörg lönd sín eigin vistvænu merki. Föt, sem eru með sænska KRAV, hollenska SKAL eða þýska IVN, hafa einnig uppfyllt kröfur vegna tilbúins áburðar og skordýraeiturs við ræktun bómullar og ullar.

Veldu blómið eða svaninn

Þegar þú eykur við fatnaðinn þinn er erfitt að sjá hversu mikill vottur af aukaefnum fylgir með í kaupunum. Þess vegna er umhverfismerking góð leiðbeining – t.d. umhverfismerking Evrópusambandsins, „blómið“, eða norræna umhverfismerkingin, „svanurinn“. Bæði þessi merki hafa komið á heilsufars-, umhverfis- og gæðastaðli og tryggja að föt, sem hafa merkin, séu meðal þeirra umhverfisvænstu á markaðnum. T.d. er ekki leyfilegt að nota litun eða litarefni sem gætu valdið ofnæmi eða krabbameini. Föt merkt sem umhverfisvæn mega ekki nota upphleypta áprentun úr PVC-efni og litirnir uppfylla endingarskilyrði varðandi þvott, ljós og svita.