|
|
Hvers vegna kyssum við?
Þeir sem fást við atferlisrannsóknir halda að kossar séu leifar frá frumbernsku, þar sem bæði menn og apar settu stút á munninn við brjóstagjöf. Og sögulega? Fyrir löngu, löngu síðan var það trú manna að máttur sálarinnar væri í anda mannsins. Koss var þess vegna tákn andlegs hjónabands.
|
Dýfðu honum í mjólk
Hjá flestum fjölskyldum með börn getur það verið eins konar afrek að komast út úr húsinu á morgnana (lyklar?, snuð? börnin?, súkkulaðikaka?, þvottapoki?). Þá gerist það. Leiftursnöggur kveðjukoss mömmunnar og pabbans verður til þess að fínu, glansandi, glitrandi mokkavarir mömmu lenda á skyrtukraga pabba. Hvað núna? Dýfðu kraganum í venjulega mjólk þar til hún fær lit varalitsins. Settu síðan tæran uppþvottavökva á blettinn. Láttu hann vera á í 4-6 tíma áður er flíkin er þvegin. Ef enn er vottur af lit eftir, nuddaðu þá með alkóhóli þegar flíkin er orðin þurr.
|