|
|
Ólöglegt að tyggja
Þegar tyggjói er skyrpt á göturnar, límist það fast við undirlagið og er aðeins unnt að fjarlægja það með miklum erfiðleikum. Vegna mengandi eiginleika þess er ólöglegt að tyggja tyggjó á götunum í Singapúr. Nýlega hefur þó nikótíntyggjó verið heimilað.
|
Notaðu ísmola
Flestir foreldrar klípa sig í handleggina þegar þeir verða þess varir að saklausa barnið þeirra hefur breyst í latan ungling í hettupeysu og með smellutyggjó sem gjarna nær að festast í hettunni. Hér er það sem þú skalt segja við unglinginn þegar tyggjó festist í flíkunum: Settu flíkina í frystinn ef þar er pláss, annars skaltu þekja blettinn með ísmolum. Bíddu. Skafðu af eins mikið og þú getur. Ef tyggjóið hefur ekki alveg horfið, settu þá bómullarklút með bensíni á bakhlið blettsins. Þegar bletturinn er orðinn mjúkur skaltu nudda blettinn varlega með bensíni. Síðan á að þvo flíkina eins og venjulega.
|