|
|
Sundföt með olíublettum
Tjara og olía í vatni geta orsakað bletti á bikiníi og sundskýlum. Hvað er til ráða? Sumir nota sjámpó, en þú getur líka nuddað blettinn varlega með smjöri. Eftir tvo tíma skaltu reyna að ná mýktri tjörunni með hreinsuðu bensíni. Notaðu eins lítið bensín og þú getur til að komast hjá upplitun.
|
Smyrðu það með smjöri
Bara það að hjóla í skólann er afrek í sjálfu sér þegar þú ert krakki og verður fyrir fyrsta taugaáfallinu sem götuljós, hjólreiðamenn, lausir hundar og pizzakassar í rennusteinunum valda. Og hvað gerir Pétur litli þegar hann kemur að mönnum við malbiksstörf á götuhorninu? Hann dettur. Og skemmir fínu buxurnar sínar með malbiki. Hvað gerir þú? Nuddaðu fitu (olíu, smjöri eða smjörlíki) á buxurnar; láttu hana vera á yfir nótt – helst í plastpoka – svo bletturinn haldist rakur. Skafðu smjörið af, settu svolítinn uppþvottasápulög á blettinn og láttu það verka sig í nokkrar klukkustundir. Síðan skaltu þvo flíkina samkvæmt meðhöndlunarleiðbeiningunum.
|