Hvernig á að fjarlægja blómafrækorn úr brúðarkjólnum

Engin ryksuga? Notið límband

Ef þú hefur ekki ryksugu við hendina, rúllaðu þá límbandi upp á höndina á þér. Notaðu límhliðina til að klappa létt á og fjarlægja frjókornin. Og það er miklu auðveldara að vera með límbandsrúllu í töskunni en ryksugu.

Sogaðu – ekki nudda

Liljur eru fallegar. En ekki þegar appelsínugul frjókorn þeirra óhreinka rómantíska hvíta brúðarkjólinn og aðeins nokkrir klukkutímar eru þar til ganga á upp að altarinu. Brúðkaupshefðir geta valdið nógu miklu álagi, svo í guðanna bænum: Nuddið ekki!! Dustið það ekki af með höndunum!! Ekki fá lánaðan happavasaklút brúðgumans!! Ef þú nuddar, nuddarðu litarefninu bara dýpra inn í efnið. Og það eru ekki margir sem hafa aukabrúðarkjól hangandi í skápnum. Ryksugaðu það í staðinn! Ef þú hefur tíma eftir óhappið -að því tilskyldu að um sé að ræða silkikjól sem má þvo - klappaðu blettinn með glærum uppþvottalegi og láttu hann vera á í 4 – 6 tíma. Þvoið síðan við hæsta hitastig sem kjóllinn þolir.